Wednesday, July 06, 2005
Hugsunarleysi....
Þá hef ég eytt út þessum skrifum mínum öllum - tveggja ára "dagbók" horfin :)
Til ykkar sem lásu þetta og urðu sárir, reiðir eða var misboðið - mér finnst það mjög leiðinlegt og ég bið ykkur afsökunar. Það var ALDREI mín meining að særa nokkurn með þessum skrifum :(
Þetta blogg var oft á tíðum mjög persónulegt og þessvegna var fáum útvöldum gefin adressan.
Hinsvegar get ég ekki afsakað það, að hafa skrifað þessa hluti. Þetta voru mínar hugsanir eða skoðanir á þeim tíma sem þær voru skrifaðar. Þið hefðuð eins getað verið að lesa dagbókina mína, tölvupóstinn minn eða msn-loggana mína.
Lesið eitthvað sem ykkur er ekki ætlað og ykkur gæti sárnað - þannig er það því miður.
Einu sinni var sagt við mig "ef þú vilt ekki að fólk lesi það sem þú skrifar - ekki setja það á Internetið" :) Soldið mikið til í þessu og mun ég hugsa út í það í framtíðnni :) Hélt bara að það væri nóg að treysta þeim sem þessa adressu höfðu, datt ekki í hug að fólk gæti fundið þetta á annann hátt. Stupid, I know!
Hef fengið svolítið í hausinn slæma hluti sem ég hef látið flakka um fólk. Kennir manni það að maður þarf að standa og falla með þeim hlutum sem maður segir. Oftast eru hlutir nú bara sagðir í bakið á manni og guði sé lof veit maður ekki allt það ljóta sem um mann er sagt :) Ímyndið ykkur að einn daginn fengju ykkar vinir/kunningar lista yfir allt sem þið hafið sagt um þá í hugsunarleysi, kæruleysi og pirringi :) Það væri nú gaman ekki satt??
Góðar stundir, krúttin mín :)
Læt ykkur vita ef ég byrja að blogga aftur einhverntímann ;)